Pixel 10 Pro XL

Besti farsíma­díll­inn!

10% afsláttur!
af aukahlutum.
Endurgræddu!
gamli síminn uppí.
Skilað og skipt!
Við endurgreiðum.
Díll er díll!
Splæsum mismuninn ef verðið lækkar.

OE700 þráðlaus heyrnatól frá XQ fylgir öllum snjallsímum út ágúst 2026!

Google Pixel 10 Pro XL er stærri útgáfan af Pro símanum fyrir þau sem vilja meira pláss, stærri skjá og enn betri upplifun. Hann er fullur af snjöllum Google AI eiginleikum, með glæsilegri hönnun og myndavél sem gerir það auðvelt að fanga augnablikið hvort sem það er í dagsbirtu, að kvöldi til eða mynda eitthvað fallegt í fjarska.

Stóri 6,8" Super Actua skjárinn nýtur sín vel í öllu: myndum, myndböndum, leikjum, vinnu og daglegu flakki. Pixel 10 Pro XL er líka með hraðari hleðslu en minni Pro týpan, öflugan Tensor G5 kubb, 16 GB RAM og Pro myndavélakerfi með allt að 100x zoomi, svo þú færð stóran og öflugan Pixel síma sem er tilbúinn í allt sem dagurinn býður upp á.

  • 6,8" Super Actua skjár
  • Google Tensor G5 örgjörvi
  • 16 GB RAM
  • Pro þreföld myndavél: 50 MP víðlinsa, 48 MP ultrawide og 48 MP telephoto linsa
  • Allt að 100x Pro Zoom
  • 42 MP selfie myndavél með autofocus
  • 24+ klst. rafhlaða, allt að 70% hleðsla á um 30 mín. og Pixelsnap þráðlaus hleðsla

Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!

Lagerstaða

Litir

OE700 þráðlaus heyrnartól
Pixel 10 Pro XL
Stærð

Skoðaðu hvernig þú getur dreift greiðslunum

2 Greiðslur
Frá
107.750 kr. / mán
Heildargreiðsla
215.501 kr.
ÁHK
44.09%