iPhone 13 Refreshed - Græn Græja
Besti farsímadíllinn!
OE700 þráðlaus heyrnatól frá XQ fylgir öllum snjallsímum út ágúst 2026!
Grænar græjur eru raftæki sem hafa verið yfirfarin af alúð og eru tilbúnar til þess að eignast nýjan eiganda! Ódýrara fyrir þig og betra fyrir umhverfið! Þessi iPhone er með einkunnina A sem þýðir að tækið sé í mjög góðu ástandi og sýnir aðeins örfá merki um notkun.
iPhone 13 er kraftmikill og áreiðanlegur snjallsími sem hentar jafnt í vinnu, myndatökur og hversdagslega notkun. Bjartur OLED-skjárinn skilar skörpum myndum og fallegum litum, hvort sem þú ert að horfa á myndbönd, skoða samfélagsmiðla eða spila leiki.
Tvöfalt myndavélakerfið fangar skýrar og líflegar myndir við fjölbreyttar aðstæður. Með góðri rafhlöðuendingu, hraðvirkum A15 Bionic örgjörva og 128 GB geymsluplássi er iPhone 13 traustur félagi sem heldur vel í við daginn.
- 6,1" Super Retina XDR OLED-skjár
- A15 Bionic örgjörvi
- 128 GB geymslupláss
- Tvöföld 12 MP myndavél
- 12 MP TrueDepth myndavél að framan
- Face ID andlitsgreining
- 5G og MagSafe stuðningur
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Lagerstaða
Litir


Græn græja