MacBook Neo 13" A18 Pro 512GB
30.000 mAh hleðslubanki frá XQ fylgir öllum snjallsímum og tölvum út maí 2026!
Apple MacBook Neo A18 Pro er fartölva fyrir öll sem vilja hafa hlutina létta, fallega og lipra í einu og sama tækinu. Tölvan er nett, litrík og tilbúin í öll helstu verkefni sem þarf að leysa, hvort sem það er vinna, nám, glósur, myndvinnsla eða smá afslöppun í lok dags. MacBook Neo kemur í fjórum fallegum litum; sítrusgul, ljósbleik, indigo blá og í klassískum silfruðum lit. Hin fullkomna fartölva sem hentar nánast öllum og er frábær fyrir fólk á ferðinni, en það fer lítið fyrir henni í töskunni og rafhlaðan endist allan daginn!
- 13" Liquid Retina skjár
- Apple A18 Pro örgjörvi
- 8 GB vinnsluminni
- 512 GB SSD geymsla
- Allt að 16 klst rafhlöðuending
- Wi-Fi 6E og Bluetooth 6.0
- Þyngd um 1,2 kg
- Touch ID notar fingrafarið þitt til að aflæsa Mac-tölvunni, heimila greiðslur og skrá þig inn á vefsíður og öpp.
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Lagerstaða
Litir

