Þú sækir Tap Out appið og getur valið hvaða forrit og vefsíður þú vilt loka fyrir og til að opna þau aftur verður þú að fara og „tappa“ símann á Tap Out hnappinn sjálfan.
Þessi þröskuldur hjálpar okkur við að grípa síður í snjalltækið og falla aftur í hugsanalausan skjátíma og "doom-scrolling". Tap Out hjálpar þér að halda fókus, klára verkefni, sofa betur og lifa meira í núinu. Tækið er lítið, einfalt í notkun og virkar bæði með iOS og Android símum.
- Hnappurinn er með segli svo hægt er að festa hann á ísskápinn.
- Appið telur hversu margar klukkustundir þú hefur "tappað út".
- Þú getur tímastillt hvað þú vilt "tappa út" lengi, en getur alltaf opnað á öppin aftur með því að "tappa" símanum á hnappinn.
- Margir notendur geta notað sama hnapp, svo hann hentar vel á heimilið eða vinnustaðinn.
- Hnappurinn er með innbyggðri NFC tækni sem talar við símann þinn.
